|
|
26.05.2008 13:50:08 / jónalitla
Fyrir þá sem ekki vita, en langar kanski að kíkja á gullmolann minn, er hún með síðu á barnalandi.. Slóðinn er www.marienatasha.barnaland.is og lykilorðið er joensen Endilega verið dugleg að kvitta.. Það er alltaf svo gaman að sjá að fólk kíkir inn 
Vel á minnst.. Blóðprufan sýndi ekkert athugavert nema að ég er blóðlítil og það er eitthvað hækkuð einhver tala í lifrinni.. Annað var eins og það átti að vera. Þannig að þreytan, slappleikinn og þyngdartapið á sér ekki neina skýringu enn sem komið er. Ég á hins vegar að panta tíma hjá doksa aftur ef ég held áfram að léttast, svo ég þarf að fara að hringja í hann fljótlega.
»
20.05.2008 13:53:09 / jónalitla
Ef það er ekki eitt, þá er það annað.. Ég hef í nokkuð mörg ár (12 til að vera nákvæm ) verið að berjast við aukakílóin mín, sem kanski sumum þykir ekki mörg, en mér hefur engu að síður þótt of mörg og hafa háð mér og ekki hjálpað upp á sjálfstraustið.. Nú er það svo að ég léttist og léttist og léttist og get ekkert við því gert. Ég byrjaði að léttast á meðgöngunni, sem er aldrei gott, en það voru bara 3 kíló. Síðan ég átti, (fyrir 2 mánuðum) er ég búin að léttast um 11 kíló. Það gera 14 kíló í allt, og þykir það nú helst til of mikið. Ég var hjá doksa um á föstudaginn og leist honum ekki á blikuna þegar ég spurði hvort eðlilegt væri að léttast mikið meðan maður er með barn á brjósti, og hann sagði að það væri alveg normalt, að missa kanski 2-3 kíló.. Maðurinn fékk eiginlega bara sjokk þegar ég sagði honum hvernig staðan væri og pantaði fyrir mig blóðprufu til að tékka á hvort í lagi væri með efnaskiptin í mér eða hvort einhver önnur skýring fyndist.. Nú er ég ekki að gera neitt öðruvísi en ég hef gert alla mína ævi, svo það er ekki eins og ég sé í einhverri megrun. Jæja ég fór svo í blóðprufuna í dag, og fæ niðurstöður á fimmtudaginn. Konan sem tók blóðprufuna ætlaði aldrei að finna æðina, því ég er greinilega allt of blóðlítil líka, þrátt fyrir að ég sé að taka járntöflur.. En þegar hún var loksins búin að taka úr mér blóð og setja plástur á meiddið, þakkaði ég fyrir og tók upp burðarrúmið. Þegar ég tók upp burðarrúmið sprautaðist blóð út um allt úr litla gatinu eftir nálina, og rann í dágóða stund. Ég þurfti að fá mér sæti aftur því mig fór að svima. Ég hafði greinilega ekki gott af meira blóðtapi. Konan lét mig leggjast fyrir og náði í appelsínudjús handa mér og skipti svo um plástur.. og setti í þetta sinn hálfgerðar sáraumbúðir.. Ég var látin liggja í smá tíma og fékk ekki að fara fyrr en ég gat fullvissað hana um að allt væri í lagi. Hún gaf mér appelsínudjús með í nesti, sem ég átti að drekka á leiðinni heim. Það er langur vegur að labba heim til mín frá doksa, og löng og brött brekka sem ég hálf kveið fyrir að labba upp. Mér fannst þetta nú óþarfa áhyggjur og hálf kjánalegt að fá nesti með, en tók samt á móti djúsnum.. Sem betur fer, því ég var ekki búin að labba langt þegar mig fór að svima aftur og fann heitt blóðið leka niður eftir handleggnum. Ég dreif mig í að finna góðan steypukant að setjast á og drekka safann minn. Þar sat ég svo í örugglega hálftíma áður en ég treysti mér í að halda áfram. Ég komst svo áfallalítið heim til mín. Smá stopp hér og þar í brekkunni miklu, en það hafðist á endanum.. Ég veit ekki alveg hvað er að gerast með mig, en mér líður eins og aumingja alla daga. Alltaf þreytt og slöpp og hef ENGA orku í eitt né neitt. Bara að ryksuga hjá mér er nóg til að ég þurfi að setjast niður og hvíla mig í þó nokkurn tíma á eftir. Vonandi kemur eitthvað út úr þessari blóðprufu svo hægt verði að laga þetta. Því nú getur þetta ekki verið vítamínskortur, því ég tek multi vitamín og járn og magnesium.. (næstum því á hverjum degi ).. Jæja, þá er ég búin að væla nóg í dag.. Líður aðeins betur.. takk takk Þangað til næst, hafið það best.. ble ble
»
14.05.2008 10:54:43 / jónalitla
Jæja, mínir draumar og mínar áætlanir eru farnar í vaskinn.. Næstu árin a.m.k. Ég held ekki út lengur að vera svona langt frá börnunum mínum og fjölskyldu og vinum. Ég er búin að vera að íhuga þetta síðan á meðgöngunni eins og margir vita, en var eiginlega búin að útiloka það. Þangað til aftur núna eftir að mamma og Alma voru í heimsókn hjá okkur nýbökuðu mæðgum. Ég fann það svo vel meðan þær voru hérna, og eftir að þær fóru hvað ég stend rosalega, hrikalega alein með sjálfa mig og litluna og bara allt. Jú jú ég hef Helgu og Teddu. En Helga hefur jú sína eigin fjölskyldu og vinnu að hugsa um og ég sé hana sjaldnar og sjaldnar, og nú er Tedda flutt til frederikshavn og ég kem ekki til með að sjá hana neitt oft heldur. Pabbi litlunnar er þá í raun sá eini sem er eftir, og hann er jú ´vinnandi í Þýkskalandi alla vikuna og er bara heima á laugardögum í rauninni og þá er hann nú kanski ekki alltaf að nenna eða geta haldið mér félagsskap. Föðurömmuna vil ég bara ekki sjá inn á mitt heimili eða nálægt mér og litlu, en neyðist þó til þess fyrir kurteisis eða skylduræknis sakir einstaka sinnum. Hún hefur jú rétt á að sjá litla gullið annað slagið. Þá er það upptalið í rauninni, sá félagsskapur sem ég hef hér úti, eftir að ég átti. Ég er ekki þessi út á við manneskja og á frekar erfitt með að eignast góða vini. Tala nú ekki um eftir að maður varð fullorðinn. Þá verður bara hálf vonlaust að eignast VINI. Kunningjar er eitthvað allt annað. Eitthvað sem maður heilsar úti á götu, en kíkir ekki reglulega í kaffi til, og kunningja á ég nokkra hérna, en það er bara ekki nóg. Ég er semsagt búin að ákveða að flytja heim í haust, þar sem ég get verið meðal fjölskyldu og vina, og Marie Natasha getur alist upp meðal fólks sem þykir vænt um hana. Pabbi hennar er að vonum ekki í skýjunum yfir þessari ákvörðun minni, en hann skilur hana. Ég þarf á því að halda að vera nær börnunum mínum og börnin mín þurfa á mér að halda. Það er ekkert flóknara en það.
»
25.04.2008 06:26:33 / jónalitla
Alveg er það furðulegt hvað mannskepnan er vanþakklátt og vælandi sköpunarverk.. Ég segi mannskepnan almennt, því ég vil ekki meina að það sé bara ég Veðrið hér er búið að vera æðislegt allan apríl mánuð með sól og hita og örugglega mátulega miklum blástri á nákvæmlega akkúrat mátulega réttu hitastigi.. Það er ég viss um.. Samt sem áður, þegar ég hef setið úti og sólin skinið beint niður á mig í litla garðinum mínum, hef ég yfirleitt hrökklast inn aftur eftir smátíma, vælandi yfir að það sé ólíft úti fyrir hita og sólin sé svo sterk að hún blindi og maður þarf að píra augun og gretta sig, svo allar hrukkurnar (sem þó enn eru nokkuð óáberandi) koma í ljós.. Svo þegar maður gengur eitt skref út fyrir garðinn, er maður kominn úr skjólinu og þá finnur maður kælandi blásturinn og það er yndislegt, alveg þangað til maður tekur næsta skref út fyrir garðinn, þá er blásturinn orðinn of mikill og of kaldur, svo maður hrökklast 2 skref tilbaka aftur í skjólið, kæfandi hitann og skerandi birtuna í litla garðinum, kvartandi yfir kulda og roki.. Ég var búin að óska eftir bara örlítilli rigningu, svona af því að það er svo gott fyrir gróðurinn Í gærkvöldi byrjaði svo að rigna... Bara örlítil súld.. Varla hægt að finna fyrir því.. Veðurspáin segir að það eigi að vera svoleiðis veður um helgina og ég er strax orðin þunglynd, því það er þokulitur á himninum og rakt loft og ég veit það á að rigna.. Sólin lætur ekki sjá sig, það sem af er deginum.. Og er nú ekki áliðið enn. kl rétt að verða 8:30 en ég vil fá steikjandi sólina til að blinda mig og brjálaða rokið til að kæla mig.. Hvernig er þetta með ykkur ? Er þetta svipað eða er það bara ég sem aldrei er ánægð ?
»
11.04.2008 13:47:58 / jónalitla
Já, þeir voru fljótir að fljúga þessir dagar sem mamma og Alma voru hjá okkur. Það er búin að vera alveg ótrúleg hjálp og stuðningur í að hafa þær hérna og eins og ég skrifaði um hér áður, þá gerði ég mér fyrst grein fyrir hvað það er mikil vinna og skipulag sem þarf að vera þegar maður er einn með svona pínulítið kríli. Ég vaknaði kl 5 í morgun til að keyra þær út á flugvöll í Álaborg. Það tók næstum hálftíma að vekja litlu, því hún svaf svo vel, og þegar hún loksins vaknaði var henni gefið að drekka og skipt á bleiu í flýti og svo bara út í bíl. Ég var með leiðinda tilfinningu í maganum og hálf grátklökk alla leiðina á flugvöllinn vegna þess að þær voru að fara. Og eins og við var að búast, byrjuðu tárin að leka, þegar búið var að knúsast og kveðjast og þær löbbuðu í burtu. Ég er ekki stærri í mér en það. Ég finn það fyrst núna almennilega hvað ég er fjölskyldu og vinalaus hérna úti. Ekki það að maður á nú einhverja kunningja út í bæ og svo eru það Tedda og Helga, en maður er samt eitthvað vængbrotinn hérna án fjölskyldunnar og vinanna. Ég er ekki að segja að ég sé að flytja á klakann aftur en auðvitað poppar það uppí kollinn alltaf annað slagið þegar maður verður einmana og þarf á fólkinu sínu að halda. Og alla leiðina heim aftur, hugsaði ég og hugsaði og reyndi að finna leið til að geta komið að heimsækja landann sem fyrst.. Hver veit, kanski það takist áður en þetta ár er á enda  En jæja, litlan svaf alla leiðina til Álaborgar og tilbaka aftur og var bara svo yndisleg. Hún liggur svo og sefur aftur núna.. ja, síðustu 4 tíma, og mér var farið að leiðast að bíða eftir að hún vaknar, svo ég ákvað að nota tækifærið og skrifa hér nokkrar línur. Ég átti t.d afmæli í gær og varð enn einu sinni deginum eldri. Við fengum gott að borða og köku og osta í kvöldkaffinu Þetta var bara huggulegur afmælisdagur. En ég sá það að ef að mamma og Alma ekki hefðu verið hér, þá hefði ég eytt afmælisdeginum ein með litlu snúllu, því Tedda var að vinna og Helga heima með börnin sín. HMMM Ég er að hugsa um að hafa þetta ekkert lengra í dag. Þegar maður les þetta yfir, er þetta allt svo mikið væl eitthvað að ég get ekki gert ykkur það að lesa meira af því Ég vona að þið hafið það öll gott og þangað til ég er komin í betri húmor, ble ble
»
08.04.2008 08:01:05 / jónalitla
Jæja, þá er allt að falla á rétt ról aftur. Mamma og Alma komu út þann 1.apríl og eru búnar að gleðja okkur mæðgur með nærveru sinni síðan. Verst hvað tíminn er fljótur að fljúga, því nú eru bara 3 dagar eftir og svo fara þær heim í heiðardalinn aftur og skilja okkur eftir einar. Það er búin að vera ótrúlega mikil hjálp í þeim, bæði með litlu dúlluna og bara allt sem viðkemur daglegu lífi yfir höfuð. Það er fyrst núna sem ég uppgötva hvað það er mikil vinna að vera aleinn með heimili og ungabarn og að fá hlutina til að smella og passa. Bara að komast í sturtu eða borða matinn þarf undirbúning og skipulag þegar maður er einn. Passa að litla sofni áður en maður fer út með ruslið og svo frv... En, alla veganna, hún var skírð í fyrradag, þann 6.apríl og heitir núna opinberlega Marie Natasha Dam Joensen. Hún fékk eftirnafnið hennar mömmu Skírnin gekk vonum framar og svaf litla krútt bara frá því hún var klædd í kjólinn, og á meðan kórinn söng hástöfum og meira að segja meðan presturinn jós vatni á höfuðið á henni, hún bara svaf þangað til alveg í restina á messunni. Þá þurfti hún aðeins að gera í bleiuna, til að búa til pláss í mallanum fyrir næstu máltíð. Svo mamman fór með hana í biðherbergið og skipti og gaf Eftir kirkjuna var haldin lítil og fámenn en hugguleg kökuveisla til heiðurs litlu Marie og það gekk allt bara svo ljómandi vel. Hún svaf nánast allan daginn og ákvað rétt aðeins að opna augun og spjalla við pabbann og föðurömmuna áður en þau færu heim aftur. Ég er búin að setja inn nokkrar myndir í viðbót, bæði frá skírninni og svo bara daglegu amstri, svo endilega kíkið  Litlan er að kalla á matinn sinn, svo ég get ekki haft þetta lengra að sinni. En þangað til næst.. Hafið það gott og veriði happy. ble ble
»
27.03.2008 10:52:49 / jónalitla
Jæja, þá kom að því að maður fékk smá tíma til að setjast niður og skrifa einhverjar línur. Veit ekki hvað mikinn tíma ég fæ, þar sem litlan gæti vaknað hvað úr hverju.. Ég semsagt átti þann 14.mars kl 00:27.. litla stelpu uppá 51 cm og 3.190 gr. dökk dökk augu og svartan lubba.. og það gekk allt bara betur en ég var búin að þora að vona. Hún sat reyndar föst alveg eins og hin tvö börnin mín, en eftir tveggja tíma rembing tókst mér að skjóta henni út, án hjálpartækja eins og tangar eða sogklukku, en það þurfti með hin bæði.. Svo ekki nóg með að ég er að rifna úr monti með litluna, heldur er ég líka svo stolt af sjálfri mér að hafa loksins náð að fæða, alveg sjálf  Af því að allt gekk vel og við mæðgur báðar hraustar og fínar, þá fengum við að fara heim kl 10:30 um morguninn og erum við bara búnar að hafa það svo huggulegt. Fyrir utan að ég var nánast rúmliggjandi alla páskana. Fékk sýkingu í tútturnar og fárveiktist. Er nú búin að jafna mig að mestu aftur, og var að koma úr göngutúr með litluna núna. Við fórum niður á kirkjukontorið að plana skírnina. Hún verður skírð þann 6.apríl. Mamma og Alma eru að fara að koma til mín á þriðjudaginn og ég er að rifna ég hlakka svo til. Þær ætla að vera hjá mér í 10 daga og það vill svo heppilega til að ég næ að eiga afmæli áður en þær fara heim aftur. Svo þær verða hér bæði við skírn og afmæli Mamma ætlar að vera sæt og halda á litlu undir skírn og Alma og Tedda verða skírnarvottar. Það verða víst að vera þrír vottar svo ég er að hugsa um að biðja Helgu um að vera númer 3.. Hjúkkan var í heimsókn í gær og leist svona líka vel á gripinn, læknirinn skoðaði hana í fyrradag og hún er alveg eins og hún á að vera. Strax búin að þyngjast um 1/2 kíló og lengjast um 2 cm. Hún dafnar semsagt mjög vel hjá mér og var ekkert að léttast neitt fyrstu dagana eins og flest börn gera nú.. ég er soddan Búkolla að það er ekkert hægt að fara í megrun þegar maður er að hanga á mínum túttum  Ég held ég hafi þetta ekki lengra í bili. Þetta eru svona helstu fréttir eins og er, svo ég veit ekki alveg hverju á að bæta við. hún sefur alla daga og nætur og vakir helst frá kvöldmat til 23-miðnættis, svo ég hef ekki yfir neinu að kvarta Langar reyndar að nota tækifærið hér og óska bræðrum mínum þeim Gylfa og Marinó innilega til hamingju með afmælið. Love you guys.. og nú er bara ár í the big 30  Þangað til næst.. ble ble og hafið það æðislegt
»
25.03.2008 18:14:17 / jónalitla
búin að setja inn nokkrar myndir af litlunni í myndasafnið, en biðst afsökunar á að það er ekki alveg rétt röðin á þeim og eitthvað hefur ruglast hjá mér það sem stendur undir þeim. Skrifa meira inn hér á morgun. þangað til ble ble og hafið það gott
»
12.03.2008 15:32:45 / jónalitla
jæja, þá getur maður farið að sjá fyrir endann á meðgöngunni. Ljósmóðirin mín á vagt á fæðingadeildinni eftir kl 14 á morgun og sagði mér að hringja bara þangað þá og tilkynna að ég héldi að vatnið væri farið hjá mér, svo hún gæti kallað mig inn. Hún ætlar þá að "stelast" til að sprengja belginn og setja mig af stað þannig. Það er víst ekki vinsælt hér að þær setji konur af stað fyrr en maður er kominn 2 vikur fram yfir svo það á að vera leyndarmálið okkar.. og þið farið ekkert að kjafta því  Eftir að belgurinn er sprengdur, geta liðið upp í 24 tímar án þess að nokkrar hríðar komi, en þá er sett upp dripp til að framkalla hríðar.. svo ég eignast litla stelpu annaðhvort á morgun og í síðasta lagi á föstudaginn. Það er nóg til að ég endi ekki með að vera alein, svo ég er ánægð með þessa heimsókn mína til ljósku. Finnst það sætt af henni að ætla að gera mér þennan greiða. Það eru ekki allar sem myndu gera það. En það eru svosem ekki frekari fréttir af mér núna, svo ég slútta þessu bara hér. Læt vita af mér hvernig gengur.. Sjálfsagt bara þegar ég er búin, orðin ungbarnamamma aftur og komin heim með krílið. Maður fær að fara heim með ungann 4 tímum eftir fæðingu hér, ef allt er í lagi með bæði móður og barn og allt eins og það á að vera.. Og það verður það að sjálfsögðu í okkar tilfelli
»
12.03.2008 08:35:12 / jónalitla
Og ég er enn ekki búin. Er orðin soldið þreytt á þessum PLATverkjum endalaust, en löngu hætt að búast við að litlan fari að láta sjá sig þennan daginn eða næsta. Ég er að fara til ljósmóðurinnar aftur núna á eftir og verður gaman að heyra hvað hún hefur að segja í dag. Ætla að biðja um að vera sett af stað bara annaðhvort í dag eða á föstudaginn í síðasta lagi, svo það ekki endi með að ég verði alein við fæðinguna, því Tedda fer að vinna aftur á sunnudaginn, þá er hennar tveggja vikna frí búið, og pabbinn er burtu alla virka daga og er bara heima um helgar. Helga er farin að vinna alla daga og er heima með börnin þess á milli, svo möguleikinn á að geta haft einhvern með við fæðinguna er orðinn ansi lítill ef ég ekki fæði fyrir sunnudag Sjáum til hvort þær aumkvi sig yfir mig.. Ég skrifa betur um það seinna í dag, ef ég verð ekki á fæðingadeildinni  Þangað til, hafið það gott og ble ble
»
06.03.2008 09:49:30 / jónalitla
Ekki fór ég á sjúkrahúsið í nótt og ekki farin enn. Gerði allt sem ljóskan sagði mér að gera, tók því rólega og fór í heitt bað, fékk mér rauðvínsglas og beið. Nóttin var alveg verkjalaus og ég vaknaði mikið skúffuð... En einhverjar pílur eru farnar að láta kræla á sér af og til svona eftir því sem líður á morguninn. Ætla bara ekkert að taka því rólega í dag, er á leið í þvottahúsið og ætla svo að ryksuga og skúra og gera hreint.. eina ferðina enn  vildi bara láta vita að ekkert væri skeð ennþá, svo þið getið fylgst aðeins með.. Það er svo dýrt að senda sms á línuna í hvert skipti sem eitthvað gerist og leiðréttingu í hvert skipti sem allt dettur niður aftur  En þvottahúsið og púlið bíður eftir mér.. Skrifa meira EF eitthvað fer af stað
»
05.03.2008 15:52:07 / jónalitla
Góðan dag kæru lesendur  Jæja, þá er ég sest aftur, og ætla að skrifa nokkrar línur. Ekki margar, en þó eitthvað. Ég var að koma frá ljósmóðurinni rétt áðan og fékk þar að vita, merkilegt nokk, þrátt fyrir að ég hef ekki haft neinar hríðar, en bara einstaka pílur af og til, að þá er ég samt komin 2-3 í útvíkkun og leghálsinn er bara ekki finnanlegur lengur. Hún reiknar með að sjá mig á fæðingadeildinni í fyrramálið, en svo getur það líka dregist lengur. Ég bara vona að ég fari að fá einhverjar almennilegar hríðar og klári þetta sem fyrst Fyrirmælin voru að fara heim og slaka á og fá mér rauðvínsglas til að koma hormónunum af stað. Þannig að Tedda frænka skaust í búðina og er væntanleg með rauðvínsflöskuna hvað úr hverju  Hér er ég alla veganna löngu tilbúin með allt fyrir komu nýjasta fjölskyldu meðlimsins og eyði dögunum í að bíða. Ég hugsa að ég hafi þetta ekki lengra í dag, á ekki gott með að sitja við tölvuna lengi í einu þessa dagana, en læt nú vita hvað gerist, ef eitthvað þá gerist Þangað til næst, hafið það gott og ble ble
»
24.02.2008 21:02:07 / jónalitla
Góða kvöldið og má ég bjóða sjálfa mig velkomna aftur, eftir... ja, er ekki að verða komið ár síðan síðast ??  Ég er búin að vera netlaus ansi lengi að minnsta kosti og skyldi mig ekki undra þó enginn nennti að líta hér inn lengur, en ég skrifa þá bara fyrir sjálfa mig  Ég hugsa að ég taki bara stutta samantekt á því hvað hefur verið að gerast hjá mér undanfarna marga mánuði, og láti þar við sitja.. Ég bjó semsagt hjá Helgu í smátíma meðan ég var að finna íbúð og endaði svo á að finna eina fyrir algera tilviljun, næstum við hliðina á henni. Ég flutti næstum með það sama. Þann 12.janúar var ég svo viðstödd fæðingu lítils herramanns Helguson og fékk að klippa á naflastrenginn og alles. Það var bara sæla og þið getið trúað að ég er enn montin yfir því Ég var að vinna í fyrirtæki sem heitit Oticon og var að búa til heyrnartæki. Missti vinnuna þar vegna langs og óvænts ferðalags til Íslands síðasta sumar, sem upphaflega átti bara að vera 2 dagar, en dróst og dróst.. Anyways.. Ég fékk næstum strax vinnu sem barþjónn á einum pöbbnum hérna en varð að hætta þar aftur í endaðan október þar sem doksi bannaði mér að vinna vegna grindargliðnunar og hættu á fósturláti.. Já, fyrir ykkur sem ekki vissuð, þá er stelpan ólétt og á ekki nema tæpar 2 vikur eftir af áætluðum meðgöngutíma, ef maður getur orðað það þannig.  Ég sit semsagt bara daginn langan og bíð eftir að ný prinsessa komi í heiminn. Ég er líka komin með netið aftur, svo ég kem nú sjálfsagt til með að skrifa eitthvað hér inn annað slagið, og jafnvel skella einhverjum myndum með, svona þegar ég er í betra stuði. Anyways, þið vitið þá a.m.k að ég er enn lifandi, ef þið kíkið hér inn. Þangað til næst, hafið það gott og ble ble
»
27.03.2007 19:08:01 / jónalitla
Góða kvöldið öll sömul.
Ég sit núna heima hjá Helgu og er að passa,
börnin litlu farin í rúmið að sofa en elsta er úti að leika. Ég
ákvað að nota tækifærið og reyna að skrifa nokkrar línur hér inn á
meðan. Ég er búin að skrá mig inn í skólann, byrja í ágúst.
Þarf að taka stúdentinn áður en ég held áfram. Það tekur 2
ár. 2 Miður skemmtileg ár þar sem ég þarf að mæta í
leikfimi.. Skólaleikfimin sem ég alltaf var svo hrifin af í
den.. 
Ég sótti um vinnu á elliheimili hér í bæ, á
fimmtudaginn var og ég var beðin um að koma með skriftlega umsókn,
sem ég svo vippaði fram úr erminni á no time. Afhenti hana svo á
mánudaginn og konan var afar ánægð að sjá mig aftur. Sagðist hafa
orðið smeik um að ég kæmi ekki aftur. Ég var ekki ráðin á staðnum,
þar sem það voru margir aðrir sem sóttu um en ég krossa fingur og
vona það besta, og er jafnvel frekar bjartsýn, þar sem hún bað mig
að koma á fund hjá sér á fimmtudagsmorguninn næsta og tala betur
við sig og ég fengi þá um leið að skoða staðinn og fræðast meira um
starfsemina þar... Hljómar ekki eins og hún ætli að neita mér
um vinnu, en maður veit aldrei.. Ég bara vona.
Ég er líka að leita mér að íbúð, þar sem ég bý
heima hjá Helgu í augnablikinu, svo það er allt að gerast hjá mér
þessa dagana.
Hér skín sólin alla daga orðið og börnin hennar
Helgu gátu leikið berrössuð út í garði í dag. Hér hefur verið
grillað meira og minna alla daga, og það lyftist svo sannarlega á
manni brúnin þessa dagana.
Ég hef svosem ekki mikið meira að segja í kvöld,
en ég læt vita af mér þegar ég er búin að fara í vinnu viðtalið á
fimmtudaginn. krossið fingur öll 
þangað til næst, hafið það gott og ble
ble
»
19.02.2007 22:02:57 / jónalitla
hæ hæ, þið sem enn kíkið. Nú er langt um liðið en lítið hefur gerst
þannig séð, sem ég nenni að skrifa um. Ég var heima um jólin eins
og sumir urðu varir við. Það var æðislegt að koma og hitta
fjölskyldu og vini aftur en merkilegt nokk var það líka bara
frábært að koma heim ( til dk) aftur. Ég er að gæla við að komast
heim aftur um páskana líka. Er ekkert sérlega bjartsýn á það, en
maður má alltaf láta sig dreyma ekki satt.. Nú annars bara í sumar.
Ég er á leið í háttinn núna, svo þetta verður ekki langt. Vildi
meira bara svona láta vita af mér hérna. Skrifa meira á næstu
dögum... ég lofa ;o) þangað
til hafið það gott. ble ble
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|